Jæja, þá er Ína og Ingvar farin til Íslands og ég er bara einn eftir í DK ásamt tíkinni Emmu.
Það á eftir að pakka smá en annars var Ína að mestu leiti búinn að pakka öllu smá dóti áður en hún fór. Svo þarf ég bara að taka niður allar hillur og ljós. Og svo jú þrífa húsi.
En gámurinn kemur á fimmtudag og fæ ég nokkra kunningja til að hjálpa.
Það er líka kominn nýr maður á verkstæðið í staðin fyrir mig og á ég því ferkar auðvelt með að frá frí til að sinna því sem þarf að klára fyrir heimflytning.
Emma á svo flug á mánudaginn næsta og þar ég að fara með hana til Kastrup og setja hana í Cargo. Svo er hún lendir á Íslandi fer hún beint í sóttkví og verður þar í 4 vikur. Það vera miklir fagnaðar fundir þegar hún verður sótt, vona bara að hún fari ekki í fýlu út í mig : )
Er farið að hlakka til að sjá ykkur öll á komandi sumri.
Kveðja Bjössi
Það verður gaman að hitta þig aftur félagi
Kv. Óskar