Jæja þá fer að styttast í þetta, í næstu viku á ég bókað flug til Íslands. Það verðu forvitnilegt að sá hvar ég lendi á landinu: )
Ég er búinn að afhenda íbúðina sem við bjuggum í og hef verið í gistingu hjá vinafólki nágrönum okkar færeyingum, en svo vildi óheppilega til að foreldrar hans komu í heimsókn og yfirtóku gestaherbergið. Sem betur fer er hægt að leigja stök gestaherbergi sem leigufélagið skaffar og er ég í einu svoleiðis núna. Þar er rúm, sjónvarp og klósett(sjónvarpið það mikilvægasta : ).
Er farinn að hlakka til að koma heim og hlakka til að sjá fjöldskyldu og vini aftur.
Kveðja Bjössi